Muna að aka utan í bifreiðar á yfirvegaðan hátt

Mikið þakka ég fyrir þá dásemd sem mbl.is hér er sko hægt að finna slúður, fréttir og stórskemmtilegt málfar, þessi frétt er í því tilliti mjög skemmtileg.

En síðast þegar ég vissi var hvorki Ásahverfið né Arnarneshæðin í Hánífjúrd. En í bílnum voru tvær manneskjur, þrír draugar og einn hundur eða bara ökumaður og farþegi. Hvaða máli skiptir annars hvort ökumaðurinn er kven- eða karlkyns og hvað lögreglan gerði við þau eftir að hafa stöðvað aksturinn. Ég fæ ekki betur séð en að lögreglumaðurinn sé með fótinn ofan á maga viðkomandi. Svo ók lögreglan nota bene af yfirvegun utan í bílinn, með smá adrenalíninnblæstri þó. Ég dáist þó mest að frúnni að hafa komið þessum eldgamla kagga í þennan glæfraakstur, þetta er nú ekki beint sá nýjasti úr kassanum.

Fréttin er að mínu viti mun betur orðuð í Fréttablaðinu í dag þar sem hún er á bls. 2.

Aðeins af málfari, ég las um eina sem ætlar í Nauthólfsvík og aðra sem er ólétt af seinni stráknum sínum.


mbl.is Glæfraakstur í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Íslenskan getur verið ansi sniðug... :)

Tinna (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 09:27

2 Smámynd: Sóla

Eða kannski bara "Ligg" og ruglast á Santa og glæponinum

Sóla, 9.7.2008 kl. 09:56

3 Smámynd: Kobbi Trukkakall.....

hún er nú með fótinn á bakinu á honum og lætur þunga sinn hvíla á hinum fótinum svo það var nú ekkert verið að kremja neinn enda yfir hundrað kg skrokkur sem lá þarna og vældi hann hefur nú bara gert þetta til að hann færi ekkert að böglast til að standa upp.... og ég hef reyndar grun um að hann hafi mögulega ruglast og orgað GAS GAS.....

Kobbi Trukkakall....., 10.7.2008 kl. 14:28

4 Smámynd: Sóla

Hey Kobbi

Hún hver? Maður þarf allavega að rýna vel í myndina til að sjá að viðkomandi liggur á bakinu enda hefði hitt verið svolítið furðulegt ef lögreglan væri með fótinn ofan á maga mannsins.

Annars minnist ég hvergi á að verið sé að kremja einn né neinn. Ég styð lögregluna í sínum aðgerðum.

Sóla, 10.7.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband