Athyglisverð mynd við þessa frétt

Mér sem leiðsögumanni krossbrá þegar ég sá myndina við þessa frétt, þarna er grindverk úr bandi sem heldur fólki frá því að fara inn fyrir og alveg upp að hveropinu eins og "fólkið" á myndinni gerir. Þetta er ekki bara stórhættulegt, jú, náttúra landsins er óblíð og aldrei að vita hverju er von á, þarna þarf ekki nema örlítin jarðskjálfta til að vatn fari að bulla aftur upp úr. Auk þess veldur þessi umgegni miklum skemmdum á steinlaginu sem er umhverfis hverinn (man bara hvað það heitir á ítölsku enda vanari að segja frá þessu á því máli en móðurmálinu).

Mikill tími við Geyissvæðið fer í að vara fólk við hitanum og svæðinu og svo sér maður oftast fólk þramma beinustu leið inn fyrir böndin, þá breytist ég oftast í gólandi leiðsögumanninn og stugga mínu fólki frá eftir bestu getu. Ekki bara er þetta óvirðing við náttúruna heldur það að geta ekki virt reglur sem settar eru. Mér finnst stundum eins og fólk vilji helst dýfa sér ofan í. Svo á ég það á hættu að vera dregin til ábyrgðar ef eitthvað skildi koma fyrir, þá reynir á orð gegn orði hvort vel hafi verið varað við áður en farþegum er hleypt út.

Þess vegna skora ég á mbl.is að setja skýringar við þessa mynd eða setja aðra við þessa frétt.


mbl.is Ísland - þegar þú hefur ekki efni á Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti vinur mannsins

Vonandi fær þessi hundur betra heimili og atlæti. Mér finnst samt skrýtið að halda gæludýr eins og hund og taka hann ekki með í útilegu. Sumir eru greinilega samviskulausir og finna ekki til samkenndar.

Ég velti fyrir mér hvort þessi hundur sé Rottweiler eða Doperman hundar því svo virðist sem ákveðin tegund fólks kjósi helst að halda þær tegundir.

Og ég sem setti minn Pjakk á hundaleikskóla svo hann væri ekki einn heima.


mbl.is Handtekinn fyrir illa meðferð á hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst þetta hallærislegur fréttaflutningur

Óskaplega er þetta dramatísk frétt og mikið gert úr vandræðum þessa fólks sem mér finnst að mörgu leiti vera sjálfskipað klúður. Lendir maður á eyðslufyllerí bara sísona? Er þá ekki betra að fara sér hægar og selja þær eignir sem þarf að selja fyrst og kaupa svo annað? Ég hljóma kannski mjög leiðinleg þegar ég segi þetta en læt vaða, hafði fólk enga sjálfstæða hugsun á þessu tímabili, lætur fólk virkilega banka og fasteignasala hvetja sig og teyma áfram? Ég hélt að flestir vissu hvaðan tekjur fasteignasala og banka koma?

Ég veit að það er ekki margt verið að gera fyrir skuldara en einhvern vegin fæ ég mig ekki í að hafa samúð með fólkinu og aðgerðum þeirra. Eigum við hin sumsé að borga fyrir lóðina og íbúðirnar tvær? Ekki segja mér að þetta sé allt forsendu bresti og bankahruni að kenna. Við hljótum að þurfa gera ráð fyrir smá skynsemi.

Rétt eins og ég er á móti því að borga Icesave er ég líka á móti því að borga skuldir þessarar fjölskyldu.


mbl.is Fjölskylda á hringekjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju má ekki bara nota rétt orð

Ef maðurinn hefur verið undir áhrifum fíkefna og eða áfengis og er færður á "viðeigandi stofnun" eins og sagt er fréttinn af hverju má þá ekki bara tala um Geðdeild Landsspítalans þar sem afeitrun fer fram eða SÁÁ þar sem fólk fer í áfengis og vímuefnameðferð?

Er það svo mikið felumál?

Það er nokkuð augljóst að maðurinn á við andlega erfiðleika að stríða og vonandi að hann fái góða hjálp við að vinna á þeim.


mbl.is Færður á viðeigandi stofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með nýja árið

Hvaða bull er þetta, í dag eru allir að óska mér til hamingju með nýja árið, ég hélt að venjan væri að segja Gleðilegt ár í stað þess að óska manni til hamingju með það. Ætli þetta sé komið frá Happy new year?

Mér finnst þetta leiðinleg málvilla (ef þetta er þá málvilla).


Sóðaskapur í Perlunni

Ég og stubburinn minn fórum í sameiginlega blysför Ferðafélagsins og Útivistar núna á milli jóla- og nýárs sem var mjög gaman. Þar sem ég hafði tíma á milli blysfararinnar og flugeldasýningar ákvað ég að færa bílinn minn upp í Perlu í stað þess að labba eftir honum eftir sýninguna með þreyttan og svangan tveggja ára gutta.

Þegar flugeldasýningunni lauk var sannkölluð íslensk bílaþvaga á bílastæðinu við Perluna svo í stað þess að húka inni í bíl meðan úr leystist með úrillan stubb ákvað ég að fara í kaffihús Perlunar og fá okkur þar samlokur og fara svo beint heim í háttinn.

Ég panta samlokur og fer svo í að finna borð, það sem vakti athygli mína er að á flestöllum borðum var samansafn af afgöngum, diskum og bollum dagsins. Þetta finnst mér fyrir neðan allar hellur, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég fer í Perluna og allt lítur svona út.

Verandi leiðsögumaður finnst mér þetta enn bagalegra, því Perlan er sá staður sem oft er stoppað á í bæjarferð og fólki bent á kaffiteríuna. Perlan er ekki ódýrasti staður bæjarsins ein samloka með skinku og osti kostar um 500 kr. Þetta er einn af þeim stöðum sem hvað flestir túristar sem dvelja hér í borginni milli jóla og nýárs heimsækja.

Er þetta sú umgegnismynd sem við viljum gefa af okkur? Ekki var svo mikið annríki þarna um 19:30, setið við nokkur borð og einn á undan mér. Ég sá þrjá starfsmenn, tvo í ísbar/grilli og einn á kassa, ekkert þeirra var neitt að vinna í því að hreinsa af borðunum sem hefði alveg verið hægt ef viljinn hefði verið fyrir hendi.

Ekki var þetta nýlegt því greinilegt var að rusli hafði verið safnað saman til að ná í laust borð.

Ég velti fyrir mér hvort þarna sé einfaldlega ekki hreinsað af borðum fyrr en í dagslok? hvers vegna?

Mikið er örugglega gaman að mæta fatahengisverði í anddyrinu, láta hann hafa flíkina sína, ganga svo upp stigann í gegnum þetta drasl upp á fimmtu hæð á fimm stjörnu veitingastaðinn þar. Í lyftunni er einmitt auglýsing um að Perlan sé ein af fimm bestu eitthvað.

Samræmist þetta virkilega? 

 


Húrra

Fyrir ekki svo löngu síðan tók ég mig til þegar ég frétti af því að hægt væri að fara með plastumbúðir í Sorpu og byrjaði að safna í plastpoka. Eitthvað varð svo lítíð úr framkvæmdum þvi ein skyrdolla komst í pokann og dagaði þar uppi. Meginástæðan fyrir þessu er sú að ég hefði þurft að gera mér ferð í Sorpu með fullan poka. Það kostar það að muna eftir pokanum að heiman, muna eftir honum í bílnum, muna að fara í Sorpu. Sumsé heljarinnar heilaleikfimi. Mér hefur alltaf runnið til rifja að henda heilum plastumbúðum, til dæmis undan sjampói.

Þess vegna fagna ég því mjög að nú sé hægt að henda þessum umbúðum í grenndargámana og mun byrja aftur að safna í poka. Það er allavega minna mál að muna eftir að trítla með pokana í næsta gám sem eru í fimm mínútna göngufjarlægð hjá mér. Ætli ég verði ekki eins og dósasöfnunarkerlingin sem ég mæti með innkaupakerruna, með pokana mína, einn með fernum, einn með blöðum og þriðja með plastumbúðum.

Ætli ég verði ekki bara að fara að fá mér kerru undir þetta.


mbl.is Breytingar á grenndargámum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er ég sammála þessu

Ég held að það sé ekki tilviljun að Desmond Tutu skuli vera handhafi friðarverðlauna Nóbels, mikið er gott að loks skuli einhver taka sig til og gagnrýna þennan skelfilega Simbabvíska forseta sem hefur leitt ómældar hörmungar, jahh hungursneyð, kólerufarald, borgarastyjröld auk þess sem innra kerfi landsins er illa farið og getur ekki tekið á þessum hörmungum. Burt með þennan einræðisherra. Vonandi gera þjóðir heims sitt til að koma honum frá.
mbl.is Tutu gagnrýnir S-Afríku vegna Mugabe
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fór hann á vörubíl?

Vonandi hefur ferðin sóst honum vel í snjónum og bókstafurinn kominn heilu og höldnu heim með Sturlu, ætli hann hafi verið á vörrara?

Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu flokki, nafnið minnir óneitanlega á Framsóknarflokkinn.


mbl.is Framfaraflokkurinn fær listabókstafinn A
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá get ég bætt Next á listann

Hvað með það þó Next hefði farið á hausinn, eigum við almenningur að hafa svona mikla samúð með þeirra málstað eða eigum við bara að segja æ,æ og halda áfram að láta taka okkur ra..ga... Að vísu hefðu væntanlega nokkur störf tapast en berum við almenningur samt ábyrgð á þessum fyrirtækjum.

Ég hef verslað svolítið þarna í gegnum tíðina en nú get ég sett þetta fyrirtæki á listann minn yfir þau fyrirtæki sem ég ætla að forðast. Áður eru á þessum lista, Kúnígúnd og Hagakup.

Manni er eiginlega farið að ofbjóða svolítið viðskiptalífið hérlendis, svo sem ekki í fyrsta sinn.


mbl.is Next vildi þau eða ekkert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband